Körfubolti

Sjö þjóðir hafa sótt um HM

Elvar Geir Magnússon skrifar

Í næstu vikur rennur út frestur til að sækja um að fá að halda heimsmeistarakeppnina í körfubolta árið 2014. Alls hafa sjö þjóðir sent inn umsókn en það eru Sádi Arabía, Katar, Ítalía, Frakkland, Danmörk, Spánn og Rússland.

Næsta HM verður 2010 í Tyrklandi en ekki er enn komið í ljós hvar keppnin verður haldin eftir það. Búist er við að fleiri þjóðir munu sækja um að fá að halda mótið áður en umsóknarfrestur rennur út.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×