Fótbolti

Pep Guardiola skýrir frá áætlunum sínum á morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pep Guardiola er hér lengst til vinstri á myndinni.
Pep Guardiola er hér lengst til vinstri á myndinni. Nordic Photos / AFP

Pep Guardiola, nýráðinn knattspyrnustjóri Barcelona, mun skýra frá áætlunum sínum varðandi liðið á blaðamannafundi á morgun.

Guardiola mun á morgun vera formlega kynntur fyrir fjölmiðlamönnum í herbúðum Barcelona en varalið félagsins kláraði sína leiktíð núna um helgina.

Liðið varð meistari í fjórðu efstu deild á Spáni og vildi hann fá að njóta þess áður en færi að ræða aðra hluti.

„Ég er með skýrar hugmyndir varðandi aðalliðið en nú er ekki tíminn til að ræða þær," sagði hann nú um helgina.

Eiður Smári Guðjohnsen er á mála hjá Barcelona og hefur verið sagður einn þeirra leikmanna sem eru sagðir á förum frá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×