Krúnukúgararnir höfðu ekkert myndefni Óli Tynes skrifar 15. apríl 2008 15:14 Paul Aðalsteinsson.
Íslendingurinn sem er sakaður um að hafa reynt að kúga fé út úr meðlimi konungsfjölskyldunnar hafði ekki í höndunum neinar upptökur af þessum meðlimi að gera eða segja eitt eða neitt. Þess í stað var Paul Aðalsteinsson með átta klukkustundir af upptökum á samtölum við fyrrverandi starfsmann sem var ýmist drukkinn eða undir áhrifum lyfja. Samtölin tók hann upp á farsíma sinn og færði síðan yfir í tölvu. Paul Aðalsteinsson kom fyrir rétt í Old Baily í gær ásamt félaga sínum Sean McGuigan. Saksóknarinn í málinu segir að starfsmaðurinn fyrrverandi hafi borið fram allskonar ásakanir. Meðal annars að viðkomandi meðlimur konungsfjölskyldunnar sem er karlkyns hafi átt við sig munnmök. Hann lýsti einnig áliti sínu á öðrum meðlimum konungsfjölskyldunnar á fjandsamlegan og niðurlægjandi hátt. Saksóknarinn segir að þeir félagar hafi reynt að selja breskum fjölmiðlum þetta efni. Þar á meðal News of The World, The Sun, Sunday Express og Mail á Sunday. Enginn þessara fjölmiðla hafi viljað líta við efninu. Þá hafi þeir snúið sér beint að hinum konungborna og reynt að kúga út úr honum fimmtíu þúsund sterlingspund. Félagarnir neita sök. Þeir eiga yfir höfði sér allt að 14 ára fangelsi ef þeir verða sakfelldir.
Erlent Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn mynda meirihluta Innlent Fleiri fréttir Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Sjá meira