Körfubolti

Pavel með sex stig í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Pavel Ermolinskij.
Pavel Ermolinskij. Mynd/Róbert

Pavel Ermolinskij skoraði sex stig fyrir Huelva sem tapaði fyrir Bruesa í spænsku B-deildinni í körfubolta í gær.

Pavel var í byrjunarliði Huelva og lék í tæpar 36 mínútur í leiknum. Hann nýtt öll tveggja stiga skotin sín en misnotaði eina þriggja stiga skotið sitt. Hann hitti úr þremur af fjórum vítaköstum sínum. Hann tók fimm fráköst í leiknum og gaf tvær stoðsendingar.

Huelva er nú í níunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×