Mögulegt að ís hafi fundist á Mars Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. júní 2008 07:32
Vísindamenn telja geimfarið Phoenix sem lenti nálægt norðurpól Mars fyrir tæpum mánuði hafa grafið niður á ís. Myndir frá Phoenix sýna mola af ljósu efni sem kom upp á yfirborðið þegar vélarmur á geimfarinu gróf skurð í yfirborð plánetunnar rauðu. Efnið var horfið þegar önnur mynd barst frá Phoenix nokkrum dögum síðar og telja vísindamenn það óræka sönnun þess að um ís hafi verið að ræða sem svo hafi gufað upp eftir að hann kom fram í dagsljósið. Í upphafi kom til greina að um salt væri að ræða en hvarf efnisins þykir benda ótvírætt til íss þar sem salt myndi ekki hverfa þrátt fyrir að grafið væri ofan af því. Þegar geimfarið tók til við að grafa annan skurð í gær lenti vélarmur þess á hörðu undirlagi og varð frá að hverfa eftir þrjár tilraunir til að komast í gegnum það. Fræðimenn geimvísindastofnunarinnar gera því skóna að þarna hafi Phoenix grafið niður á íshellu en ís á Mars gæti bent til þess að líf þrífist þar eða hafi þrifist þar. Jarðvegssýni sem hitað var upp með sérstökum búnaði í geimfarinu sýndi þó engin merki um vatn.
Vísindi Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira