Körfubolti

Sigrar hjá Íslendingaliðunum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Vilhelm
Íslendingaliðin Solna og Sundsvall unnu bæði leiki sína í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta um helgina.

Sundsvall vann í dag sigur á Gothia á útivelli, 69-56. Jakob Sigurðarson skoraði þrettán stig fyrir Sundsvall.

Þá skoraði Helgi Már Magnússon 21 stig fyrir Solna sem vann Borås í gærkvöldi, 98-69.

Sundsvall er á toppnum með 20 stig en Solna er ásamt tveimur öðrum liðum í 2.-4. sæti með átján stig en öll eiga þau leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×