Úrslitaleikurinn í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu árið 2011 fer fram á Wembley, þjóðarleikvangi Englendinga.
Frá þessu er greint á vefmiðlinum soccernet þar sem vitnað er í heimildamann innan knattspyrnusambands Evrópu.
Þetta verður tilkynnt formlega á fundi framkvæmdastjórnar UEFA sem fram fer í Sviss næstkomandi fimmtudag og föstudag.
Valið stendur á milli tveggja annarra leikvanga, Allianz Arena sem er heimavöllur Bayern Munchen í Þýskalandi og hins vegar ólympíuleikvangurinn í Berlín.