Körfubolti

Jón Arnór að hafa góð áhrif á Granada-liðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Vilhelm

CB Granada vann í gær sinn annan leik í röð í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta þegar liðið vann 83-76 sigur á Fuenlabrada á útivelli.

Þetta var þriðji leikurinn hjá Jóni Arnóri síðan að hann snéri til baka úr meiðslunum og því ljóst að Íslendingurinn er strax fgarinn að hafa góð áhrif á Granada-liðið sem var búið að tapa nokkrum leikjum í röð fyrir endurkomu hans.

Jón Arnór var með 6 stig og 2 stoðsendingar á 22 mínútum og spilaði lokamínútur leiksins þegar Granada landaði sigrinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×