Körfubolti

Jón Arnór byrjaður að æfa aftur með Granada

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson er kominn af stað á nýjan leik.
Jón Arnór Stefánsson er kominn af stað á nýjan leik. Mynd/Vilhelm
Jón Arnór Stefánsson er byrjaður að æfa á nýjan leik með spænska körfuboltaliðinu CB Granada eftir að hafa meiðst illa á baki á undirbúningstímabilinu. Jón Arnór mætti á sín fyrstu æfingu á mánudaginn en hann mun æfa með liðinu annaðhvorn dag auk þess að hann mun ekki taka þátt í nema hlut af æfingunum fyrst um sinn.

Jón Arnór mun auk þess æfa einn undir handleiðslu sjúkraþjálfara sem hjálpar honum við að ná upp fyrri styrk og komast yfir meiðslin sem voru mjög alvarleg. Álagið á hann verður síðan aukið hægt og rólega þar til að hann kemst aftur á fulla ferð.

„Ég er góður," sagði Jón Arnór á spænsku við blaðamann heimasíðu CB Granada. „Mér líður vel, ég hafði ekki æft í tvo mánuði þannig að það er gott að komast að stað á ný. Ég saknaði þess mikið að komast ekki á æfingar með félögunum í liðinu og nú bíð ég eftir að komast á æfingu á hverjum degi," sagði Jón Arnór í viðtali á heimasíðu félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×