Körfubolti

Jón Arnór kynntur á blaðamannafundi í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Það er stutt síðan Jón Arnór Stefánsson fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með KR.
Það er stutt síðan Jón Arnór Stefánsson fagnaði Íslandsmeistaratitlinum með KR. Mynd/Vilhelm

Jón Arnór Stefánsson verður kynntur sem nýr leikmaður Benetton Basket Treviso á sérstökum blaðamannafundi í Palaverde-höllinni í Treviso klukkan 17.15 í dag að ítölskum tíma sem er klukkan 15.15 að íslenskum tíma.

Jón Arnór mun fara í myndatöku og svara spurningum blaðamanna eftir að hann hefur farið í gegnum ítarlega læknisskoðun. Jón Arnór mun síðan í framhaldinu fara á sína fyrstu æfingu með liðinu.

Jón Arnór mun spila í treyju númer sex hjá Benetton-liðinu en eins og mörgum er kunnugt þá spilar liðið í grænum búningum. Fyrsti leikur Jóns Arnórs verður síðan á móti Tercas Teramo 7.maí næstkomandi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×