Körfubolti

Annað tap TCU á leiktíðinni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU.
Helena Sverrisdóttir í leik með TCU. Mynd/TCU/Keith Robinson

Helena Sverrisdóttir og félagar í körfuboltaliði TCU-háskólans í Bandaríkjunum töpuðu í nótt sínum öðrum leik á tímabilinu.

Liðið tekur nú þátt í fjögurra liða móti sem haldið er á Bahama-eyjunum um helgina og í gær tapaði liðið fyrir hinu geysisterka liði Minnesota-háskóla.

TCU tapaði leiknum, 61-56, eftir að hafa lent mest sautján stigum undir í leiknum. Það var greinilega vel passað upp á Helenu í leiknum því hún skoraði aðeins þrjú stig á þeim 33 mínútum sem hún lék. Hún gaf þó sjö stoðsendingar, tók sex fráköst, varði tvö skot og stal tveimur boltum.

Liðið mætir nú öðru sterku liði, frá Kansas-háskóla, í leik um þriðja sætið á mótinu í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×