Körfubolti

Helgi Már búinn að semja við Solna Vikings

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helgi Már Magnússon í leik með KR í vetur.
Helgi Már Magnússon í leik með KR í vetur. Mynd/Daníel

Landsliðsmaðurinn Helgi Már Magnússon mun spila með sænska liðinu Solna Vikings á næsta tímabili en þetta kemur fram á heimasíðu KR. Þar með er ljóst að KR-liðið hefur misst þrjá landsliðsmenn frá því í fyrra því áður höfðu þeir Jón Arnór Stefánsson og Jakob Örn Sigurðarson ákveðið að spila erlendis.

Helgi Már mun spila undir stjórn landsliðsþjálfarans Sigurðar Ingimundarsonar sem tekur við þjálfun liðsins í haust en kærasta hans Guðrún Sóley Gunnarsdóttir leikur með sænska liðinu Djurgården sem hefur aðsetur í Stokkhólmi alveg eins og Solna Vikings.

Þeir Helgi Már og Jakob Örn spila því með erkifjendum næsta ár því Solna Vikings og Sundsvall (nýja lið Jakobs) hafa barist um sænska meistaratitilinn undanfarin ár, Sundsvall vann í ár en Solna Vikings árið á undan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×