Körfubolti

Helena valin besti leikmaður vikunnar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir átti frábæra viku með TCU-liðinu.
Helena Sverrisdóttir átti frábæra viku með TCU-liðinu. Mynd/Vilhelm
Helena Sverrisdóttir var í kvöld valin besti leikmaður vikunnar í Mountain West deildinni eftir að hafa spilað frábærlega í tveimur glæsilegum sigurleikjum TCU í vikunni. Þetta er í fjórða sinn á ferlinum sem Helena hlýtur þessa viðurkenningu.

Helena var með 19,0 stig, 10,0 fráköst og 6,0 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum tveimur auk þess að stela 2,0 boltum og verja 1,5 skot í leik. Helena nýtti 12 af 23 skotum sínum í þessum leikjum sem gerir 52 prósent skotnýtingu.

Helena var með 18 stig, 12 fráköst og 5 stoðsendingar í 84-66 útisigri TCU á SMU og fylgdi því eftir með að skora 20 stig, taka 8 fráköst og gefa 7 stoðsendingar í 56-54 heimasigri á Texas A&M.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×