Fótbolti

Fréttir af meiðslum Henry bornar til baka

AFP

Svo gæti farið að Thierry Henry verði í liði Barcelona í síðari leiknum gegn Chelsea í meistaradeildinni eftir allt saman.

Spænskir miðlar greindu frá því í morgun að Henry væri meiddur á hné og yrði fyrir vikið frá keppni í hálfan mánuð.

Bæði Sport og Marca hafa nú borið þessar fregnir til baka. Henry verður í leikmannahóp Barcelona fyrir leikinn á miðvikudaginn og ekki er útilokað að hann gæti jafnvel spilað samkvæmt nýjustu fréttum frá Spáni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×