Körfubolti

U-18 lið karla Norðurlandameistari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik U-18 liðsins á Norðurlandamótinu.
Úr leik U-18 liðsins á Norðurlandamótinu. Mynd/KKÍ
U-18 landslið karla varð í dag Norðurlandameistari í körfubolta eftir sigur á Finnlandi í úrslitaleik, 78-69.

Þetta er í annað sinn sem Ísland vinnur Finna á mótinu en þessi sami árgangur varð einnig Norðurlandameistari 16 ára liða fyrir tveimur árum.

U-16 lið karla fékk bronsverðlaun á mótinu í ár eftir sigur á Finnum í leik um 3. sætið.

U-16 lið kvenna tapaði hins vegar fyrir Dönum í sínum bronsleik. U-18 lið kvenna varð í fimmta og neðsta sæti mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×