Körfubolti

Jakob stigahæstur í sigri Sundsvall

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson í leik með KR á síðustu leiktíð.
Jakob Örn Sigurðarson í leik með KR á síðustu leiktíð. Mynd/Daníel

Jakob Sigurðarson var stigahæstur í liði Sundsvall sem vann sigur á 08 Stockholm á útivelli, 90-74, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Jakob skoraði 23 stig, gaf sex stoðsendingar, fjögur fráköst, stal þremur boltum og tapaði honum aðeins einu sinni á þeim rúmum 37 mínútum sem hann spilaði í leiknum.

Hins vegar tapaði Solna fyrir Örebro á heimavelli, 78-77, á sama tíma. Helgi Már Magnússon skoraði ellefu stig og tók fimm fráköst á þeim rúmum 20 mínútum sem hann lék í leiknum. Örebro skoraði sigurkörfuna fimm sekúndum fyrir leikslok.

Sundsvall er í öðru sæti deildarinnar með 34 stig, sex á eftir toppliði Norrköping. Solna er í fjórða sætinu með 32 stig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×