Körfubolti

Ekkert gengur hjá Maríu Ben og félögum í UTPA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
María Ben Erlingsdóttir.
María Ben Erlingsdóttir. Mynd/Vilhelm
Körfuboltalið The University of Texas-Pan American með íslenska miðherjann Maríu Ben Erlingsdóttir innanborðs tapaði í nótt sínum sjöunda leik í röð í bandaríska háskólaboltanum þegar liðið lá 69-58 fyrir Arkansas-Pine Bluff skólanum.

María Ben var í byrjunarliðinu og var með 8 stig og 8 fráköst á 35 mínútum í leiknum. María Ben hefur byrjað alla 7 leiki tímabilsins og er þar með 9,6 stig og 4,3 fráköst að meðaltali á 39,6 mínútum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×