Körfubolti

Kevin Durant valinn besti leikmaðurinn á HM í körfu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kevin Durant var óstöðvandi á HM.
Kevin Durant var óstöðvandi á HM. Mynd/AP
Bandaríkjamaðurinn Kevin Durant var valinn besti leikmaðurinn á HM í körfubolta eftir að hafa leitt bandaríska landsliðið til síns fyrsta heimsmeistaratitils í sextán ár. Bandaríkin vann öruggan 81-64 sigur á Tyrklandi í úrslitaleiknum.

Það voru blaðamenn á mótinu sem kusu besta leikmanninn en Kevin Durant var með 22,1 stig og 6.2 fráköst að meðaltali í leik en hann skoraði 99 stig í síðustu þremur leikjum liðsins á móti Rússlandi (33), Litháen (38) og Tyrklandi (28).

Með Kevin Durant í úrvalsliði mótsins voru Milos Teodosic (bakvörður Serbíu), Hidayet Turkoglu (framherji Tyrkja), Linas Kleiza (framherji Litháen) og Luis Scola miðherji Argentínu).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×