Körfubolti

Logi stigahæstur í tapleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson.

Logi Gunnarsson var stigahæstur í liði Solna sem tapaði fyrir LF Basket, 92-68, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Logi skoraði sautján stig í kvöld en hann hafði skorað meira en 20 stig í öllum fyrstu þremur leikjum sínum á tímabilinu.

Logi hitti úr fjórum af ellefu skotum sínum í teignum og aðeins einu af sjö skotum utan þriggja stiga línunnar. Hann nýtti þó öll sex vítaköstin sín. Hann tók þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar á þeim rúmu 30 mínútum sem hann spilaði í kvöld.

Helgi Már Magnússon skoraði níu stig fyrir Uppsala sem vann góðan útisigur á Borås, 85-75. Hann lék í rúmar átján mínútur og tók fjögur fráköst og gaf eina stoðsendingu.

Uppsala er í fimmta sæti deildarinnar með sex stig en Solna í því sjötta með fjögur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×