Körfubolti

Lamdi leikmenn með lyftingabelti

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þessi belti eru greinilega notuð í ýmislegt.
Þessi belti eru greinilega notuð í ýmislegt.

Sérstakt mál hefur komið upp í Bandaríkjunum þar sem þrír leikmenn körfuboltaliðs í menntaskóla hafa kært þjálfarann sinn fyrir ofbeldisfulla hegðun.

Leikmennirnir halda því fram að þjálfarinn hafi reglulega flengt þá með lyftingabelti ásamt því að brjóta þá niður andlega.

Þeir hafa lagt fram myndbandsupptöku máli sínu til stuðnings þar sem þjálfarinn sést flengja einn leikmanninn eftir að hann klúðraði leikkerfi á æfingu. Myndbandið var tekið upp á síma.

Þjálfarinn hefur verið sendur í frí á meðan málið er rannsakað. Hann hefur játað að hafa "klappað" leikmönnum sínum einstaka sinnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×