Spenna vegna dómsúrskurðar 1. október 2010 00:00 Úrskurði fagnað Nemendur í hindúaskóla á Indlandi fögnuðu úrskurðinum. fréttablaðið/AP
Lögregla og her höfðu mikinn viðbúnað í gær í bænum Ayodhya á norðanverðu Indlandi og víðar í landinu, eftir að dómstóll kvað upp þann úrskurð að múslimar og hindúar eigi að skipta á milli sín helgum stað, sem deilur hafa staðið um áratugum og jafnvel öldum saman. Indverskir múslimar halda upp á staðinn vegna þess að þar standa rústir mosku, sem reist var á sextándu öld en eyðilögð í óeirðum árið 1992. Þeir vilja endurreisa moskuna. Hindúar segja moskuna hafa verið reista á fæðingarstað guðsins Rama, og vilja því reisa þar bænahof. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu að múslimar geti gert tilkall til þriðjungs svæðisins, nefnilega þess hluta þar sem moskan stóð, en tveir hópar hindúa geti skipt á milli sín afganginum. Fyrstu viðbrögð bæði múslima og hindúa við dómnum voru hófstilltari en búist var við. Lögmenn hvorra tveggja sögðust ætla að áfrýja úrskurðinum. „Við vonumst til þess að hægt verði að leysa úr öllum vandamálum varðandi hindúa og múslima með vinsamlegum hætti,“ sagði Haji Arfat, leiðtogi annars hindúahópsins. - gb
Fréttir Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira