Körfubolti

Ekkert gekk hjá Jakobi og Sundsvall tapaði leik tvö

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson.
Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Vilhelm
Jakob Örn Sigurðarson hitti á afleitan dag í kvöld þegar Sundsvall Dragons tapaði með 21 stigi fyrir Uppsala Basket, 82-61,  í öðrum leik liðanna í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn fór fram á heimavelli Uppsala.

Jakob var með 5 stig og 3 stoðsendingar í leiknum en hann hitti aðeins úr 1 af 11 skotum sínum auk þess að hann tapaði 4 boltum.

Uppsala Basket var 22-14 yfir eftir fyrsta leikhlutann og lagði grunninn að góðri forustu sinni með því að skora tíu síðustu stig fyrri hálfleiks og vera 40-26 yfir í hálfleik.

Sundsvall vann fyrsta leik einvígisins á heimavelli og staðan er því 1-1. Það lið kemst í undanúrslitin sem fyrr vinnur þrjá leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×