Körfubolti

Enn tapa Jón Arnór og félagar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Vilhelm

Jón Arnór Stefánsson og félagar í spænska úrvalsdeildarfélaginu CB Granada hafa tapað fyrstu þremur leikjum sínum á tímabilinu.

Í morgun tapaði Granada fyrir Zaragoza á útivelli, 89-75. Granada hafði forystu eftir fyrsta leikhluta en heimamenn unnu næsta leikhluta með tólf stiga mun og héldu forystunni allt til loka eftir það. Staðan í hálfleik var 46-38.

Jón Arnór lék í 25 mínútur í dag og skoraði alls sjö stig í leiknum. Hann tók eitt frákast en gaf enga stoðsendingu.

Granada er eitt fjögurra liða sem er enn stigalaust í deildinni þegar þetta er skrifað. Real Madrid og Barcelona hafa unnið alla þrjá leiki sína á tímabilinu til þessa og eru á toppi deildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×