Körfubolti

Jón Arnór með svakalegan þrist á úrslitastundu - myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson átti mjög góðan leik með CG Granada um helgina þegar liðið vann 73-72 sigur á Cajasol í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Jón Arnór var með 15 stig, 4 stoðsendingar og 3 fráköst á aðeins 23 mínútum í þessum mikilvæga sigri.

Jón Arnór skoraði eina mikilvægustu körfu leiksins 43 sekúndum fyrir leikslok þegar hann setti niður þrist og kom Granada yfir í 71-70. Jón Arnór tók þá þriggja stiga skot án þess að hika og þrátt fyrir að vera meira en meter fyrir utan línuna og með mann í andlitinu. Jón Arnór hitti ekkert nema net og Granada tók frumkvæðið sem liðið hélt út leikinn.

Það er hægt sjá þennan svakalega þrist með því að smella hér (eftir um eina mínútu og 20 sekúndur) en eins er hægt að horfa á allan leikinn inn á heimasíðu deildarinnar með því að smella hér.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×