Fótbolti

Þjálfari Milan vill líka fá Balotelli

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Balotelli í leik með Ítölum.
Balotelli í leik með Ítölum.

Það eru ekki bara leikmenn AC Milan sem vilja fá Mario Balotelli til félagsins því nú hefur þjálfarinn, Massimiliano Allegri, lýst því yfir að Balotelli sé meira en velkomið að ganga í raðir félagsins.

"Okkur vantar framherja. Einhverjum sem svipar til Filippo Inzaghi. Balotelli er leikmaður Man. City en ég myndi ekkert reiðast ef hann kæmi til okkar," sagði Allegri.

AC Milan mætir Brescia á morgun. Allegri er afar ánægður með sitt lið sem hann líkir við Barcelona.

"Barcelona gefur tóninn í því hvernig á að spila fótbolta. Þar vinna allir leikmenn hver fyrir annan, rétt eins og hjá Milan."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×