Körfubolti

Magnús með sextán stig í tapi Aabyhøj

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Magnús Þór Gunnarsson
Magnús Þór Gunnarsson
Magnús Þór Gunnarsson skoraði 16 stig þegar Aabyhøj tapaði 86-91 á heimavelli á móti Næstved í dönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Þetta var annað tap Aabyhøj í röð en það hefur greinilega slæm áhrif á liðið þegar Magnús er ekki að hitta vel. Magnús hefur aðeins sett niður 2 af 13 þriggja stiga skotum sínum í þessum tveimur leikjum.

Næstved byrjaði leikinn betur, var 23-19 yfir eftir fyrsta leikhluta og með þriggja stiga forskot í hálfleik, 48-45. Magnús klikkaði á öllum fjórum þriggja stiga skotum sínum í hálfleiknum en var með 4 stig á 8 mínútum.

Aabyhøj byrjaði seinni hálfleikinn illa og var komið fimmtán stigum undir eftir aðeins sex mínútna leik. Næstved var 74-61 yfir fyrir loksleikhlutann og jók muninn síðan í sextán stig í byrjun fjórða leikhluta.

Magnús Þór skoraði fimm stig í sömu sókninni í upphafi fjórða leikhlutans og Aabyhøj náði muninum niður í átta stig (69-77) í kjölfarið. Aabyhøj minnaði muninn niður í þrjú stig á lokamínútunum en Næstved hélt út og fagnaði fimm stiga sigri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×