Fótbolti

Eto'o í þriggja leikja bann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eto'o og Cesar eigast við í leiknum.
Eto'o og Cesar eigast við í leiknum. Nordic Photos / AFP
Samuel Eto'o hefur verið dæmdur í þriggja leikja bann af ítalska knattspyrnusambandinu fyrir að skalla andstæðing í leik með Inter um helgina. Hann var þar að auki sektaður um 30 þúsund evrur.

Eto'o gerði sig sekan um gróft brot þegar hann skallaði Bostjan Cesar, leikmann Chievo, í leik liðanna um helgina. Inter tapaði þar að auki leiknum, 2-1.

Eto'o var að hefna fyrir atvik sem átti sér stað seint í fyrri hálfleik er hann fékk lúmskt högg frá Cesar.

Inter er nú níu stigum á eftir toppliði AC Milan í ítölsku úrvalsdeildinni og mætir Parma á heimavelli um næstu helgi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×