Fótbolti

Snilli Zlatans tryggði AC Milan þrjú stig - myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Zlatan Ibrahimovic fagnar hér sigurmarki sínu í gær.
Zlatan Ibrahimovic fagnar hér sigurmarki sínu í gær. Mynd/AP
Það má með sanni segja að það sé Svíanum Zlatan Ibrahimovic að þakka að AC Milan situr nú í toppsæti ítölsku deildarinnar því aðra helgina í röð skoraði hann sigurmark liðsins í 1-0 sigri.

Zlatan Ibrahimovic skoraði sigurmarkið í 1-0 sigri á Internazionale um síðustu helgi og í gær skoraði hann eina markiið í 1-0 sigri AC Milan á Fiorentina.

Zlatan sýndi snilli sína þegar hann skoraði sigurmarkið í gær eins og sjá má með því að smella hér.

Zlatan tók við fyrirgjöf frá Gennaro Gattuso í teignum, lyfti boltanum upp og klippti hann síðan markið með hjólhestaspyrnu. Markið kom undir lok fyrri hálfleiksins.

Þetta var sjötta deildarmark Zlatans á tímabilinu í 11 leikjum en hann er þremur mörkum á eftir Samuel Eto'o í baráttunni um markakóngstitilinn.

AC Milan er hinsvegar með fjögurra stiga forskot á Lazio í baráttunni um ítalska meistaratitilinn en Lazio á leik inni í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×