Körfubolti

Helena og félagar í TCU í hópi 25 bestu háskólaliða Bandaríkjanna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir.
Góð frammistaða Helenu Sverrisdóttur með TCU í síðustu viku kom henni ekki bara inn í sögubækurnar í skólanum heldur hjálpaði hún TCU-liðinu einnig að komast í hóp 25 bestu háskólaliða Bandaríkjanna í fyrsta sinn í vetur.

TCU er í 25. sæti á nýjum styrkleikalista AP-Fréttastofunnar yfir bestu kvennaliðin í bandaríska háskólaboltanum. TCU komst síðast svona ofarlega á þessum lista í desember 2008.

TCU-liðið hefur unnið fimm leiki í röð og alls tíu af þrettán leikjum sínum til þessa á tímabilinu. Auk þess að vinna alla leiki sína síðan 6. desember hefur liðið unnið sjö af síðustu átta leikjum.

Helena er efst hjá TCU-liðinu í stigum (14,2 í leik), stoðsendingum (5,3), stolnum boltum (2,7), vörðum skotum (1,0) skotnýtingu (47,3 prósent) og er síðan í öðru sæti í fráköstum (7,1) og mínútum spiluðum (29,7).






Fleiri fréttir

Sjá meira


×