Stúlknalið Íslands í fimleikum nældi í dag í silfurverðlaun á Norðurlandamótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Finnlandi.
Finnland fékk gull með 148,00 stig en Ísland kom næst með 140,50 stig. Noregur hlaut síðan brons.
Thelma Rut Hermannsdóttir varð síðan í fimmta sæti í fjölþrautinni.´
Fimm stúlkur eru í íslenska liðinu og þær eru:
Dominqua Belanyi, Grótta
Dóra Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Gerpla
Harpa Dögg Steindórsdóttir, Gerpla
Thelma Rut Hermannsdóttir, Gerpla
Tinna Óðinsdóttir, Gerpla