Körfubolti

Logi skoraði fimm þrista þriðja leikinn í röð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson.
Logi Gunnarsson. Mynd/Daníel
Logi Gunnarsson skoraði 23 stig og hitti úr 75 prósent skota sinna (9 af 12) þegar Solna Vikings vann öruggan sextán stiga útisigur á 08 Stokkhólmi, 92-76, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Solna-liðið var með frumkvæðið allan leikinn og tólf stiga forskot í hálfleik, 47-35.

Logi hitti úr 5 af 7 þriggja stiga skotum sínum og er þetta þriðji leikurinn í röð þar sem hann skorar fimm þriggja stiga körfur. Logi hefur nú hitt úr 16 af síðustu 27 þriggja stiga skotum sínum.

Logi lék í 29 mínútur í kvöld og var auk stiganna 23 með 3 fráköst og 2 stoðsendingar. Solna vann leikinn með 22 stigum á meðan hann var inn á vellinum.

Logi hefur nú skorað 19,8 stig að meðaltali í fyrstu 13 leikjum sínum í vetur en hann hefur hitt úr 45,8 prósent þriggja stiga skota sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×