Körfubolti

Helena með 18 stig á 29 mínútum í öruggum sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/TCU
Helena Sverrisdóttir og félagar í TCU hafa byrjað tímabilið á þremur sigurleikjum en liðið vann öruggan 82-59 sigur á UTSA í nótt. Þetta er aðeins í þriðja sinn sem TCU nær að vinna þrjá fyrstu leiki tímabilsins undir stjórn þjálfarans Jeff Mittie.

Helena hitti vel og var með 18 stig á 29 mínútum auk þess að taka 4 fráköst, gefa 3 stoðsendingar og stela 2 boltum. Hún hitti úr 7 af 11 skotum sínum þar af 2 af 3 fyrir utan þriggja stiga línuna.

Emily Carter var stigahæst með 22 stig en hún er á síðast ári í skólanum alveg eins og Helena. Carter var búin að hitta úr 60 vítum í röð þegar hún klikkaði í seinni hálfleiknum í nótt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×