Skógareyðing ekki minni í 22 ár 2. desember 2010 00:00 Brunninn regnskógur Ársgömul mynd af brunnum skógi í ólöglegri landnemabyggð í norðurhluta Brasilíu.Nordicphotos/AFP
Eyðing Amazon-regnskógarins hefur ekki verið hægari í 22 ár, að því er fram kemur í gögnum frá ríkisstjórn Brasilíu. Izabella Teixeira, umhverfisráðherra Brasilíu, segir gervihnattamyndir sýna eyðingu skóga sem nemi 6.450 ferkílómetrum frá því í ágúst 2009 til júlí 2010. Það mun vera fjórtán prósentum minni skógareyðing en ári fyrr. Skekkjumörk í mælingunni eru þó nokkur, eða tíu prósent. Geimrannsóknastofnunin sem tók myndirnar segir í tilkynningu að eyðing skóganna hafi ekki verið minni frá árinu 1988. „Skógareyðingin hefur ekki verið minni í sögu Amazon og við erum staðföst í þeirri viðleitni okkar að draga enn frekar úr henni,“ sagði Teixeira í gær á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar, sem fram fer í Cancun í Mexíkó. Á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC er eftir henni haft að nýju tölurnar séu „frábærar“. Teixeira segir stjórnvöld í Brasilíu stefna að því að ná skógareyðingu Amazon-regnskógarins niður í 5.000 ferkílómetra á ári fyrir árið 2017. Árangurinn sem nýju loftmyndirnar sýna segja brasilísk stjórnvöld að megi þakka átaki í að framfylgja umhverfislöggjöf landsins.- óká
Fréttir Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Fleiri fréttir Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Sjá meira