Körfubolti

Jón Arnór frábær í óvæntum útisigri CB Granada

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson.
Jón Arnór Stefánsson. Mynd/Heimasíða CB Granada
Jón Arnór Stefánsson var stigahæstur hjá CG Granada þegar lið vann óvæntan 74-67 útisigur á DKV Joventut sem er eitt af toppliðunum í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Jón Arnór átti frábæran leik en hann skoraði 19 stig á 25 mínútum auk þess að taka 4 fráköst og gefa 1 stoðsendingu. Jón Arnór skoraði þrjá þrista og hitti úr öllum sex vítum sínum.

Jón Arnór skoraði meðal annars síðustu sjö stig GB Granada í þriðja leikhlutanum þegar liðið varðist vel áhlaupi DKV Joventut liðsins.

CB Granada hafði tapað þremur leikjum í röð og sat í fallsæti í deildinni fyrir leikinn en náði að rífa sig upp og vinna liðið í 4. sæti.

Jón Arnór hefur ekki skorað fleiri stig í einum leik á þessum tímabili en hann hafði mest áður skorað fimmtán stig í tveimur leikjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×