Körfubolti

Mikil sigling á drekunum frá Sundsvall

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlynur var sterkur í kvöld.
Hlynur var sterkur í kvöld.

Íslendingaliðið Sundsvall Dragons vann í kvöld sinn áttunda leik í röð í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta er Borås Basket kom í heimsókn.

Lokatölur 93-81 fyrir Sundsvall

Hlynur Bæringsson skoraði 17 stig fyrir Sundsvall og tók 10 fráköst. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 10 stig fyrir Sundsvall að þessu sinni.

Sundsvall er í þriðja sæti deildarinnar en á tvo leiki inni á toppliðið og getur jafnað það að stigum með sigrum í þessum leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×