Körfubolti

TCU tapaði fyrir toppliðinu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/AP
Helena Sverrisdóttir skoraði níu stig fyrir TCU sem tapaði fyrir BYU-háskólanum í toppslag Mountain West-riðilsins í bandaríska háskólaboltanum í gærkvöldi, 70-60.

BYU hefur tapað aðeins einum leik á tímabilinu en TCU hefur nú tapað þremur. Úrslitakeppnin fer fram í næsta mánuði og fær TCU þá tækifæri til að hefna ófaranna.

Helena lék í 34 mínútur í kvöld, nýtti þrjú af tólf skotum sínum, gaf fimm stoðsendingar, tók fjögur fráköst og varði tvö skot. Hún tapaði boltanum þrívegis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×