Körfubolti

Jakob og Hlynur höfðu betur gegn Helga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakob og Hlynur eru að gera það gott í Svíþjóð. Mynd/Valli
Jakob og Hlynur eru að gera það gott í Svíþjóð. Mynd/Valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons er sem fyrr langefst í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta. Liðið vann auðveldan útisigur á Uppsala í kvöld.

Lokatölur 84-97 en Sundsvall var svo gott sem með unninn leik í hálfleik en staðan þá var 37-63.

Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson léku með Sundsvall en Helgi Már Magnússon spilar með Uppsala.

Sundsvall er með tíu stiga forskot í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×