Körfubolti

Hlynur og Jakob í byrjunarliðinu í Stjörnuleiknum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakob og Hlynur. Mynd/Valli
Jakob og Hlynur. Mynd/Valli
Í dag var tilkynnt hvernig byrjunarliðin verða í Stjörnuleik sænsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik.

Sundsvall Dragons á fjóra menn í byrjunarliði Norðursins og þar af eru Íslendingarnir Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson.

Liam Rush, félagi þeirra, fékk þó flest atkvæði allra leikmanna í Norðurliðinu.

Logi Gunnarsson tekur einnig þátt í Stjörnuleiknum en byrjar á bekknum.

Byrjunarliðin:

Norðurliðið;

Liam Rush, Sundsvall Dragons.

Alex Wesby, Sundsvall Dragons.

Hlynur Baeringsson, Sundsvall Dragons.

Rudy Mbemba, LF Basket.

Jakob Sigurdarson, Sundsvall Dragons

Suðurliðið:

Dino Pita, Södertälje Kings.

Demetrius Brown, 08 Stockholm.

William Walker, Solna Vikings.

Johnell Smith, Södertälje Kings.

Kellen McCoy, Borås Basket.

 

 

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×