Körfubolti

Fjórða tapið í röð hjá Helga Má og félögum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helgi Már Magnússon.
Helgi Már Magnússon. Mynd/Heimasíða Uppsala
Helgi Már Magnússon og félagar í Uppsala Basket töpuðu stórt á útivelli fyrir Norrköping Dolphins í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Norrköping vann leikinn 111-88 eftir að hafa verið 16 stigum yfir í hálfleik, 60-44.

Uppsala Basket er áfram í 5. sætinu í deildinni en liðið hefur nú tapað fjórum leikjum í röð og er fyrir vikið nú orðið tíu stigum á eftir liðunum í 3. og 4. sæti sem eru Södertälje Kings og Norrköping Dolphins.

Helgi Már var með 8 stig, 3 stolna bolta, 2 fráköst og 1 stoðsendingar í fyrri hálfleik og náði aðeins að bæta við einu frákasti við þá tölfræði í seinni hálfleiknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×