Körfubolti

Jakob tapaði naumlega í þriggja stiga skotkeppninni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi lét troða yfir sig í troðslukeppninni.
Logi lét troða yfir sig í troðslukeppninni. Mynd/SvenskaBasketligan
Stjörnuleikurinn í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta fer fram í kvöld og þar verða þrír íslenskir leikmenn í aðalhlutverki: Hlynur Bæringsson, Jakob Sigurðarson og Logi Gunnarsson. Stjörnuleikurinn fer fram í Sundsvall eða á heimavelli Hlyns og Jakobs.

Í gærkvöldi fór fram troðslukeppni og þriggja stiga skotkeppni. Tim Whitworth hjá Uppsala Basket varði titil sinn í þriggja skotkeppninni en hann fékk þar harða samkeppni frá Jakobi Sigurðarsyni. Tim Whitworth tryggði sér sigur með því að hitta úr síðasta skoti sínu.

William Walker, liðsfélagi Loga Gunnarssonar hjá Solna Vikings, tryggði sér síðan sigur í troðslukeppninni en Logi aðstoðaði hann við troðslurnar eins og sjá má í meðfylgjandi mynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×