Handbolti

Stefán: Þyngdaraflið vinnur með mér

Hjalti Þór Hreinsson í Höllinni á Akureyri skrifar
Stefán í leiknum í kvöld, vígreifur eftir eina af markvörslum sínum.
Stefán í leiknum í kvöld, vígreifur eftir eina af markvörslum sínum. Fréttablaðið/Sævar Geir
Stefán Guðnason var einn af þremur leikmönnum sem kláruðu Val í leiknum fyrir norðan í kvöld. Akureyri vann 23-20 sigur.


Stefán varði vel undir lok leiksins en hinir mennirnir tveir eru Oddur Gretarsson og Guðmundur Hólmar Helgason.

"Ég er bara svo snöggur, þyngdaraflið vinnur með mér," sagði Stefán um tvær markvörslur þar sem hann sat á gólfinu og greip boltann. Stefán var hinn hressasti en hann hrósaði kollega sínum Hlyni Morthens í hástert.

"Við vorum að fá góð færi í upphafi leiks en Hlynur var ótrúlegur. Hvar er lyfjaeftirlitið núna?" grínaðist Stefán. "Hann er að verja eins og vitleysingur. Við skjótum fimmtán sinnum og skorum einu sinni fyrsta korterið."

"Þetta dró aðeins úr okkur tennurnar. Við lentum í basli einar 45 mínútur en við komumst í gírinn þegar korter er eftir," sagði Stefán og BJarni Fritzson skaut inn: "Segðu honum að við höfum tekið þetta á breiddinni!" – "Ég var að koma að því!" svaraði Stefán og hélt svo áfram.

"Við tókum þetta á breiddinni. Margir segja að við séum með lítinn hóp en það eru margir hérna sem hafa komið inn og staðið sig mjög vel. Við erum greinilega í betra formi en aðrir," sagði Stefán kaldhæðinn.

Hann viðurkenndi að hefndin væri sæt.

"Ég vildi rústa þessum leik. En Valur hefur verið að spila mjög vel og það var bara ekki hægt. Vörnin hjá þeim var góð en ég vil meina að við séum betri en þeir," sagði Stefán.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×