Körfubolti

Helena með sextán stig og sigur í síðasta heimaleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir með kveðjughjöfina sína í nótt ásamt þeim sem voru líka að spila sinn síðasta heimaleik.
Helena Sverrisdóttir með kveðjughjöfina sína í nótt ásamt þeim sem voru líka að spila sinn síðasta heimaleik. Mynd/Heimasíða TCU
Helena Sverrisdóttir skoraði 16 stig í nótt þegar TCU vann 88-51 sigur á Air Force í síðasta leik sínum í Mountain West deildarkeppninni. TCU endaði í 2. sæti í deildarkeppninni en framundan er úrslitakeppnin sem fer fram í Las Vegas.

Þetta var síðasti heimaleikur Helenu með TCU en liðið vann 35 af síðustu 37 heimaleikjum sínum með hana innanborðs. Hún og þrjár aðrar stelpur í liðinu fengu innrammaða mynd af sér í tilefni af síðasta leiknum í Daniel-Meyer Coliseum.

Helena var auk stiganna 16 með 4 fráköst og 3 stoðsendingar á 29 mínútum en hún hitti úr 4 af 8 skotum utan af velli og úr 8 af 9 vítum.

TCU vann 13 af 16 leikjum sínum í Mountain West deildarkeppninni og hefur unnið 21 af 30 leikjum sínum á tímabilinu. BYU varð deildarmeistari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×