Handbolti

HK tók stórt skref í átt að úrslitakeppninni

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Úr leik með HK fyrr í vetur.
Úr leik með HK fyrr í vetur.
HK vann í dag gríðarlega mikilvægan sigur á Fylki, 21-20, í N1-deild kvenna og á góðan möguleika á að koma sér í úrslitakeppni deildarinnar.

Fjögur lið komast í úrslitakeppnina og er Fylkir enn í fjórða sæti og nú stigi á undan HK.

Fylkir á hins vegar erfiðan leik gegn Stjörunni, sem er í þriðja sæti deildarinnar, í lokaumferðinni um næstu helgi á meðan að HK mætir botnliði ÍR sem hefur tapað öllum sínum leikjum í deildinni í vetur.

Úrslit og markaskorara má sjá hér fyrir neðan.

HK - Fylkir 21-20 (13-12)

Mörk HK: Brynja Magnúsdóttir 10, Elísa Ósk Viðarsdóttir 3, Tatjana Zukovska 3, Elín Anna Baldursdóttir 2, Tinna Rögnvaldsdóttir 1, Jóna Sigríður Halldórsdóttir 1, Harpa Baldursdóttir 1.

Mörk Fylkis: Hildur Björnsdóttir 5, Sigríður Hauksdóttir 5, Sunna Jónsdóttir 4, Arna Valgerður Erlingsdóttir 3, Anna María Guðmundsdóttir 1, Áslaug Gunnarsdóttir 1, Nataly Sæunn Valencia 1.

Haukar - ÍR 24-20 (12-11)

Mörk Hauka: Elsa Björk Árnadóttir 5, Erla Eiríksdóttir 3, Karen Helga Sigurjónsdóttir 3, Hekla Hannesdóttir 3, Þórunn Friðriksdóttir 3, Þórdís Helgadóttir 2, Sandra Sigurjónsdóttir 2, Katarína Bamruk 1, Agnes Egilsdóttir 1, Ásthildur Embla Friðgeirsdóttir 1.

Mörk ÍR: Silja Ísberg 4, Guðmunda Magnúsdóttir 4, Sif Jónsdóttir 4, Árný Rut Jónsdóttir 3, Elzabita Kowal 3, Jóhanna Þóra Guðbjörnsdóttir 1, Þorgbjörg Steinarsdóttir 1.

Stjarnan - ÍBV 35-25 (19-11)

Mörk Stjörunnar: Hildur Harðardóttir 6, Sólveig Lára Kjærnested 6, Elísabet Gunnarsdóttir 5, Hanna G. Stefánsdóttir 4, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 4, Gunnur Sveinsdóttir 3, Esther Viktor Ragnarsdóttir 2, Kristín Jóhanna Clausen 1, Aðalheiður Hreinsdóttir 1, Rut Steinsen 1, Nína Kristín Björnsdóttir 1.

Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 11, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 4, Rakel Hlynsdóttir 3, Hildur Dögg Jensdóttir 3, Lovísa Jóhannsdóttir 2, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×