Körfubolti

Hlynur nálægt þrennunni í öruggum sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson.
Hlynur Bæringsson. Mynd/Valli
Hlynur Bæringsson gældi við aðra þrennuna í þremur leikjum þegar Sundsvall Dragons vann öruggan 21 stigs útisigur á Borås Basket, 95-74, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Hlynur var með 9 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar á 27 mínútum í leiknum en hinn Íslendingurinn í liðinu, Jakob Örn Sigurðarson, bætti við 14 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum á 26 mínútum.

Sundsvall er með átta stiga forskot á toppi deildarinnar og liðið er búið að tryggja sér deildarmeistaratitilinn.

Logi Gunnarssson og félagar í Solna Vikings unnu 80-76 sigur á á heimavelli á móti Jämtland Basket. Logi var með 14 stig og 3 stoðsendingar á 35 mínútum í leiknum. Solna-liðið er í 6. sætinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×