Körfubolti

Jakob og Hlynur sterkir í sigri Sundsvall

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakob og Hlynur. Mynd/Valli
Jakob og Hlynur. Mynd/Valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons er einum sigri frá því að komast í undanúrslit í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik eftir góðan sigur, 91-75, á Jamtland Basket í kvöld.

Sundsvall er komið með 2-1 forystu í einvíginu en þrjá sigra þarf til þess að komast í næstu umferð.

Jakob Örn Sigurðarsson skoraði 16 stig fyrir Sundsvall í kvöld. Hann tók einnig 5 fráköst og gaf 2 stoðsendingar.

Hlynur Bæringsson skoraði 14 stig, tók 9 fráköst og gaf 3 stoðsendingar.

Það gekk ekki eins vel hjá Helga Má Magnússyni og félögum í Uppsala sem töpuðu, 79-97, gegn Södertalje Kings.

Helgi skoraði 7 stig í leiknum, tók 4 fráköst og gaf eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×