Körfubolti

Lið Jakobs og Hlyns byrjaði undanúrslitin vel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jakon og Hlynur.
Jakon og Hlynur.
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons byrjaði undanúrslitin í sænska körfuboltanum vel í kvöld er það vann sannfærandi sigur, 78-63, gegn Södertalje.

Staðan í einvíginu er því 1-0 fyrir Sundsvall.

Okkar menn voru sem fyrr öflugir í liði Sundsvall. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 8 stig, gaf 8 stoðsendingar og tók 4 fráköst.

Hlynur Bæringsson skoraði 6 stig, tók 8 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×