Körfubolti

Sundsvall vann öruggan sigur í oddaleik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlynur og Jakob fögnuðu í kvöld. Mynd/Valli
Hlynur og Jakob fögnuðu í kvöld. Mynd/Valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons komst í kvöld í undanúrslit sænsku deildarinnar í körfuknattleik er liðið vann auðveldan sigur, 83-67, á Jamtland í oddaleik.

Sundsvall varð deildarmeistari en Jamtland náði áttunda sæti. Það kom því verulega á óvart að Jamtland skildi hafa náð oddaleik gegn Sundsvall. Í oddaleiknum í kvöld sýndi Sundsvall síðan mátt sinn.

Hlynur Bæringsson var afar sterkur í liði Sundsvall og skoraði 16 stig, tók 7 fráköst og gaf 3 stoðsendingar.

Afmælisbarnið Jakob Örn Sigurðarson var einnig góður en hann skoraði 12 stig, tók 4 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×