Sundsvall komið í 2-1 eftir tíu stiga heimasigur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. apríl 2011 18:49 Hlynur Bæringsson. Mynd/Valli
Sundsvall Dragons er komið í 2-1 í úrslitaeinvíginu á móti Norrköping Dolphins í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en það lið sem fyrr vinnur fjóra leiki verður sænskur meistari. Sundsvall var á heimavelli í kvöld og vann 10 stiga sigur, 80-70. Hlynur Bæringsson átti flottan alhliða leik fyrir Sundsvall en hann var með 16 stig, 10 fráköst, 6 stoðsendingar og 2 stolna bolta. Jakob Örn Sigurðarson skoraði 8 stig og gaf 2 stoðsendingar. Liðin höfðu skipts á að vinna eins stigs sigur á útivelli í fyrstu tveimur leikjum úrslitaeinvígisins en Sundsvall var á undan að vinna heimaleik og vann auk þess sinn annan leik í röð í einvíginu. Sundsvall-liðið byrjaði leikinn vel og Jakob kom þeim meðal annars í 19-7 með þriggja stiga körfu þegar tæpar 4 mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta. Sundsvall var síðan 22-14 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Sundsvall hélt forskotinu fram að hálfleik og var með níu stiga forskot, 44-35, þegar liðin gengu til leikhlés. Hlynur skoraði 9 stig í öðrum leikhluta en hann hitti úr 5 af 6 skotum sínum í fyrri hálfleiknum og skoraði alls tólf stig fyrir hlé. Norrköping skoraði fjögur fyrstu stig seinni hálfleiks en körfur frá Hlyni og Jakobi komu Sundsvall í 49-41. Norrköping-liðið var hinsvegar sterkara í þriðja leikhlutanum og var búið að jafna metin í 54-54 þegar tæpar fjórar mínútur voru eftir af leikhlutanum. Norrköping vann þriðja leikhlutann á endanum 26-13 og var því fjórum stigum yfir, 57-61, fyrir lokaleikhlutann. Sundsvall byrjaði fjórða leikhlutann frábærlega, skoraði 14 af fyrstu 18 stigum hans og komst í 71-65 þegar 4 mínútur voru eftir af leiknum. Sundsvall vann leikhlutann á endanum 23-9 og fagnaði mikilvægum sigri.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira