Körfubolti

Sundsvall komið með bakið upp við vegginn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlynur og Jakob voru sterkir. Mynd/Valli
Hlynur og Jakob voru sterkir. Mynd/Valli mynd/valli
Íslendingaliðið Sundsvall Dragons er í vondum málum í úrslitum sænska körfuboltans eftir tap, 75-87, gegn Norrköping Dolphins á heimavelli sínum í dag.

Höfrungarnir eru þar með komnir með 3-2 forskot í einvíginu og geta tryggt sér titilinn á heimavelli sínum á þriðjudag.

Hlynur Bæringsson átti stórleik í liði Sundsvall með 17 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar.

Jakob Örn Sigurðarson var einnig sterkur með 16 stig og 4 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×