Flottur endasprettur kom Frökkum í undanúrslitin á EM í körfu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. september 2011 16:40 Tony Parker. Mynd/AFP
Frakkar tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum á Evrópumótinu í körfubolta þegar þeir unnu átta stiga sigur á Grikkjum, 64-56, í átta liða úrslitum á EM í Litháen. NBA-bakverðirnir Tony Parker og Nicolas Batum fóru á flug í lokaleikhlutanum þar sem að þeir skoruðu 18 af 33 stigum sínum í leiknum. Frakkar unnu fyrir vikið upp fimm stiga forskot Grikkja í fjórða leikhlutanum og fögnuðu sæti í undanúrslitunum þar sem þeir mæta annað hvort Rússum eða Serbum sem spila seinna í kvöld. Tony Parker var stigahæstur Frakka með 18 stig, Nicolas Batum skoraði 15 stig og Nando de Colo var með 12 af 16 stigum sínum í fyrri hálfleiknum. Miðherjinn Ioannis Bourousis var með 17 stig og 11 fráköst hjá Grikkjum. Frakkar unnu sjö fyrstu leiki sína á mótinu en töpuðu lokaleik sínum í milliriðlinum þar sem að þeir hvíldu tvo bestu leikmennina sína. Með því völdu þeir sér að mæta Grikkjum í átta liða úrslitum og það virtist lengi vel vera að koma í bakið á þeim. Frakkar voru hreinlega ekki mættir til leiks í upphafi leiks. Grikkir skoruðu sjö fyrstu stig leiksins og voru 15-4 yfir eftir sex mínútna leik. Frakkar náðu að minnka muninn í þrjú stig, 14-17, fyrir lok fyrsta leikhlutans. Grikkir náðu sjö stig forskoti í upphafi annars leikhluta, 21-14, héldu áfram forystunni og voru 31-27 yfir í hálfleik. Grikkir náðu aftur sjö stiga forkosti í upphafi þriðja leikhlutans, Frakkar náðu að jafna í 40-40 með því að skora sex stig í röð en Grikkir náðu aftur forystunni og voru 43-40 yfir fyrir lokaleikhlutann. Grikkir skoruðu fyrstu tvö stigin í fjórða leikhlutanum en Frakkar svöruðu með níu stigum í röð og voru komnir með frumkvæðið í leiknum sem þeir héldu út leikinn. Tony Parker átti þátt í sjö af þessum stigum og var kominn í gang.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Í beinni: Man. City - Arsenal | Risaleikur í enska Enski boltinn Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira